Víðir í Garði er búið að krækja í spænska miðjumanninn Sasha Litwin og mun hann spila með félaginu í sumar.
Hann þekkir vel til í Garðinum því hann spilaði þar sumarið 2021 og skoraði þá eitt mark í ellefu leikjum.
Hann þekkir vel til í Garðinum því hann spilaði þar sumarið 2021 og skoraði þá eitt mark í ellefu leikjum.
Hann kom fyrst hingað til lands árið 2018 til að spila með Víkingi Ólafsvík í næst efstu deild. Tveimur árum eftir það lék hann með Völsungi á Húsavík.
Hann fór svo í Víði og er núna mættur aftur þangað eftir að hafa spilað í heimalandi sínu undanfarin ár.
„Hann hefur verið að spila síðan í heimalandinu og kemur til landsins í toppstandi," segir í tilkynningu Víðis.
Litwin er nú þegar búinn að spila einn leik fyrir Víði á undirbúningstímabilinu en hann spilaði í 2-1 tapi liðsins gegn Elliða um síðustu helgi.
Víðir leikur áfram í 3. deild í sumar eftir að hafa endað í fjórða sæti deildarinnar í fyrra.
Athugasemdir