Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 08. mars 2023 12:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjarnan tapaði gegn sænsku úrvalsdeildarliði á Spáni
Mynd: Stjarnan
Stjarnan er í æfingaferð á Campoamor á Spáni. Í gær lék liðið æfingaleik gegn sænska úrvalsdeildarliðinu Varnamo.

Lokatölur í leiknum urðu 3-1 sænska liðinu í vil. Varamaðurinn Hilmar Árni Halldórsson skoraði eina mark Stjörnunnar úr vítaspyrnu í seinni hálfleik.

Varnamo endaði í 10. sæti sænsku Allsvenskan á síðasta tímabili sem nýliði í deildinni.

Byrjunarlið Stjörnunnar: Árni Snær; Sigurbergur Áki, Björn Berg, Sindri Þór, Örvar Logi; Guðmundur Kristjánsson, Eggert Aron, Ísak Andri, Jóhann Árni, Adolf Daði; Joey Gibbs.

Íslandsmótið hefst eftir rétt rúmlega mánuð og mætir Stjarnan bikarmeisturunum í Víkingi í fyrstu umferð.


Athugasemdir
banner
banner
banner