Carragher nefnir þá þrjá sem gætu orðið 'leikmaður ársins'

Jamie Carragher.

Mynd: Getty Images

Jamie Carragher.

Mynd: Getty Images
Sparkspekingurinn Jamie Carragher telur að þrír leikmenn séu að berjast um það að vera leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni.
Það eru ellefu leikir eftir af deildinni og titilbaráttan er gríðarlega spennandi þar sem Liverpool, Manchester City og Arsenal eru að berjast á toppnum.
Hann telur að Phil Foden, Declan Rice og Virgil van Dijk séu í baráttunni um að verða leikmaður ársins í deildinni.
Carragher telur að baráttan um verðlaunin geti ráðist af því hvaða lið verður meistari.
Það er sannkallaður stórleikur á morgun þegar Liverpool tekur á móti Manchester City en sá leikur skiptir miklu máli í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn.

Declan Rice.

Mynd: EPA

Phil Foden.

Mynd: Getty Images

Virgil van Dijk.

Mynd: Getty Images