Spænski miðjumaðurinn Alejandro Zambrano er genginn til liðs við Dakvík/Reyni og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Zambrano er 32 ára en hann lék síðast hér á landi árið 2020 með Aftureldingu í Lengjudeildinni. Hann hefur leikið í neðri deildum á Spáni undanfarin ár.
Hann lék 19 leiki með Aftureldingu í Lengjudeildinni sumarið 2020 auk þess að hafa spilað þrjá leiki í Mjólkurbikarnum.
Hann lék þá sex leiki með liðinu sumarið 2019.
Dalvík/Reynir leikur í Lengjudeildinni næsta sumar en liðið sigraði 2. deildina síðasta sumar.
Athugasemdir