Fotbolti.net
08.03.24 - 20:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Marteinn Theodórs í ÍR frá ÍA (Staðfest)

Marteinn Theodórs í ÍR frá ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍR

Lengjudeildin

Marteinn Theodórsson er nýjasti leikmaður ÍR en hann samdi við liðið í kvöld og kemur frá ÍA.

Marteinn er vinstri bakvörður en getur einnig leyst stöður framar á vellinum.

Hann var á láni fyrri hluta síðasta tímabils hjá Kára í 3. deild en lék fimm leiki með ÍA í Lengjudeildinni þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild.

Hann lék þá með Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni sumarið 2020. Hann mun þvi koma með mikla reynslu úr deildinni í lið ÍR sem er nýliði í deildinni.

ÍR mætir ÍBV í Lengjubikarnum á morgun og Marteinn verður klár í slaginn.

Komnir
Marc McAusland frá Njarðvík
Kristján Atli Marteinsson frá Þór
Renato Punyed frá Ægi

Farnir
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hættur
Ólafur Örn Ásgeirsson í HK (var á láni)
Ívan Óli Santos í Gróttu (var á láni)
Ernest Slupski í Þrótt R. (var á láni)
Dagur Þór Hafþórsson í FH (var á láni)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.