Spænski þjálfarinn Alvaro Arbeloa var ósáttur eftir 2-1 tapið gegn Bayern München í fyrri leiknum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Santiago Bernabeu í gær.
Luis Díaz og Harry Kane komu Bæjurum í tveggja marka forystu með mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn.
Kylian Mbappe minnkaði muninn fyrir Real Madrid í þeim síðari en Manuel Neuer var að eiga toppleik í markinu og sá til þess að þýska liðið færi með forystu inn í seinni leikinn.
„Með smá heppni hefðum við getað komið í veg fyrir þetta tap. Við töpuðum boltanum tvisvar sem við hefðum auðveldlega getað komist hjá að gera og sérstaklega gegn liði í þessum klassa. Þér er refsað fyrir svona mistök, en ef eitthvað lið getur unnið í München þá er það Real Madrid. Við erum Real Madrid og vitum hversu erfitt það er að vinna þar, en við munum reyna,“ sagði Arbeloa.
Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni sá gula spjaldið í fyrri hálfleik og verður því í leikbanni í seinni leiknum vegna uppsafnaðra spjalda. Arbeloa var ekki sáttur með spjaldið og fannst margar ákvarðanir fara gegn Madrídingum.
„Þetta er mikil blóðtaka, en við erum með áreiðanlega kosti í þessari stöðu. Svo hef ég ekki hugmynd um hvernig hann gaf ekki rautt fyrir brotið á Mbappe. Það er erfitt að skilja svona ákvarðanir.“
Jude Bellingham var á bekknum hjá Real Madrid en hinn 18 ára gamli Thiago Pitarch byrjaði leikinn. Arbeloa sagði góða og gilda ástæðu fyrir þessu.
„Það er ekki það að ég vildi ekki spila Jude, en hann hefur verið frá í langan tíma. Ég er ekki að efast þá trú sem ég hef á honum en það er rökréttast að koma honum hægt og rólega inn í hlutina. Við þurfum leikmann eins og hann til að rekja boltann og komast framhjá leikmönnum. Hann er með mikinn persónuleika og ég sé hann verða betri með hverjum deginum sem líður og mun hann hjálpa okkur gríðarlega í leiknum í München,“ sagði Arbeloa.


