Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mið 08. apríl 2026 18:01
Snæbjört Pálsdóttir
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Eimskip
Katla og liðsfélagi hennar hjá Fioretina, Írís Ómarsdóttir
Katla og liðsfélagi hennar hjá Fioretina, Írís Ómarsdóttir
Mynd: Instargam
Katla er mætt aftur í landsliðið eftir veikindi.
Katla er mætt aftur í landsliðið eftir veikindi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir er komin aftur á fullt eftir að hafa þurft að draga sig úr síðasta landsliðsverkefni vegna veikinda. Katla segir íslenska liðið vel meðvitað um mikilvægi komandi heimaleikja gegn Úkraínu og Englandi.

„Bara mjög vel, það er klárt mál að við þurfum að sækja þrjú stig og við byrjum á Úkraínu. Þetta eru bara mjög mikilvægir leikir fyrir okkur, það vita það allir.“ sagði Katla þegar Fótbolti.net ræddi við hana um komandi verkefni og lífið í Flórens.


Katla segir fókusinn innan hópsins vera skýran fyrir fyrsta leikinn.

„Jú, næsti leikur er náttúrlega alltaf mikilvægasti leikurinn og það er rosalega mikilvægt fyrir okkur að ná í þrjú stig, sérstaklega á heimavelli.“

Katla missti af síðasta glugga eftir erfið veikindi, en segir sig nú komna aftur á góðan stað.

„Ég er bara hress, alveg orðin góð.“

„Þetta var vika á spítalanum og svo kom ég heim í fimm daga til Íslands og jafnaði mig. Þetta voru bólgur og sýking í nýranu. Ekki næs en ég er orðin góð í dag.“

Katla leikur með Fiorentina á Ítalíu og segir lífið í Flórens hafa farið vel með sig.

„Lífið er bara gott í Flórens. Mér líður bara vel þarna og topp, topp aðstaða. Fékk Hlín, íslendingin, til mín, mjög næs. Þannig ég fíla bara að vera þarna.“

Katla og Hlín Eiríksdóttir hafa spilað saman víða í gegnum árin.

„Heyrðu já, við erum uppaldar í Val, Kristianstad, landsliðinu og núna Flórens, bara heppin að við náum mjög vel saman. Gott að spila með henni og vera með henni utan vallar líka.“

Þá er hin hálf íslenska, Íris Ómarsdóttir, einnig liðsfélagi Hlínar og Kötlu. 

„Pabbi hennar er íslenskur en hún er uppalin í Noregi. Ég næ vel með henni. Hún er mjög góð og ég er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu.“

Að lokum sendi Katla stuðningsmönnum skýr skilaboð fyrir komandi heimaleiki.

„Já, við þurfum að gera þetta saman.“

„Bara að mæta á völlinn, við þurfum á ykkar stuðningi að halda.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner