Katla Tryggvadóttir gat ekki tekið þátt í landsleikjunum gegn Spáni og Englandi í undankeppni HM í síðustu viku.
Skömmu eftir að hópurinn kom saman á Spáni þurfti Katla að fara á sjúkrahús vegna veikinda sem munu halda henni eitthvað áfram frá vellinum.
Skömmu eftir að hópurinn kom saman á Spáni þurfti Katla að fara á sjúkrahús vegna veikinda sem munu halda henni eitthvað áfram frá vellinum.
„Staðan á mér er ágæt. Ég lenti á spítala í Torrevieja daginn eftir að landsliðið kom saman til æfinga á Spáni," segir Katla við Fótbolta.net.
„Í ljós kom að þetta var skæð bólga og sýking í nýranu sem þurfti að meðhöndla á spítala. Upphaflega stóð til að ég yrði inniliggjandi í 1-3 daga, en þetta endaði í sjö dögum."
Katla segir að einkennin hafi verið hár hiti, skjálfti, verkir og ónot. „Þetta var ekki gott."
„Ég útskrifaðist ekki fyrr en á föstudaginn síðast liðinn og flaug samdægurs heim til Íslands þar sem ég er núna að jafna mig í nokkra daga."
„Ég fer aftur til Flórens á miðvikudaginn, en framundan tekur við endurheimt þar sem það þarf að gefa þessu tíma til að jafna sig," segir Katla sem spilar með Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni.
„Það var mjög svekkjandi að missa af þessum landsleikjum, en svo verður maður komin inná völlinn innan skamms," segir Katla að lokum.
Hún er tvítug, sóknarsinnaður miðjumaður, sem á að baki níu A-landsleiki.
Athugasemdir



