08.05.17 - 21:46
Alexander Freyr Tamimi
Óli Stefán: Hefði verið rosalega ánægður með eitt stig
Auglýsing

Óli Stefán var ánægður að leikslokum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Stefán var ánægður að leikslokum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum ánægður eftir magnaðan 2-1 útisigur sinna manna gegn Víkingi í Pepsi-deildinni í kvöld.
Spilamennska Grindvíkinga var ekki upp á marga fiska í fyrri hálfleik en allt annað lið mætti til leiks í seinni hálfleik. Alexander Veigar Þórarinsson jafnaði metin í 1-1 og Andri Rúnar Bjarnason skoraði síðan dramatískt sigurmark í blálokin.

„Ég er mjög ánægður, ég hefði verið rosalega ánægður með eitt stig því við vorum mjög ólíkir okkur sjálfum í fyrri hálfleik. Það vantaði öll þau gildi sem við vinnum eftir og þá er þetta ótrúlega erfitt, þá getum við lítið spilað fótbolta. En í seinni hálfleik komu þeir hungraðir og unnu ótrúlega vel fyrir þessu, þá er ýmislegt hægt. Ef maður leggur dugnað og kraft í það sem við erum að gera og skilja eftir hjarta og sál úti á velli er allt hægt," sagði Óli Stefán við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Ég sá alveg viðsnúninginn í seinni hálfleik, þegar við komum út breytist öll holning á liðinu og við vorum ekkert að panikka þó við værum ekki á okkar besta degi. Systemið sem við vinnum eftir leyfir okkur bara það, ef við höldum í það er alltaf möguleiki á að gera eitthvað og einhvern veginn skilar það ótrúlegum sigri í dag."
Óli Stefán sagðist vera ánægður fyrir hönd hetjunnar Andra Rúnars sem tryggði sigurinn í uppbótartíma.
„Tilfinningin var ótrúleg, ég er bara ánægður fyrir hönd Andra Rúnars sem var búinn að vinna eins og skepna í dag en kannski ekki fá mikið. Hann hætti aldrei og dúkkaði þarna upp og sýnir sannarlega úr hverju þessi frábæri leikmaður er gerður," sagði Óli Stefán.
Grindavík þurfti að sætta sig við svekkjandi 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í fyrstu umferð. Í raun var um fín úrslit að ræða þó svo að Stjarnan hafi jafnað metin á 83. mínútu. Óli Stefán segir að menn hafi ekki dvalið lengi við svekkelsið.
„Á næsta fundi ýttum við því bara frá okkur. Við vorum að spila á móti Stjörnunni og gott stig fyrir okkur þar þó svo að við hefðum viljað fá sigur. Maður verður bara að ýta því frá og svo kemur alveg nýtt verkefni í dag. Þetta er alveg frábært, vel skipulagt og ótrúlega flott Víkingslið og fyrir okkur er þetta hrikalegt afrek að koma hérna og ná í þrjú stig í svona leik sem við eigum jafnvel undir högg að sækja."
Magnús Björgvinsson var ekki í hóp hjá Grindavík í dag eftir að hafa skorað í fyrstu umferð gegn Stjörnunni. Ástæðan er smávægileg meiðsli.
„Hann fékk vökva inn á hnéð og æfði lítið í vikunni en hann kemur til baka eftir tvo daga. Það sér fram á það að ég fái tvo til þrjá á æfingu á morgun og ég er bara mjög ánægður með það," segir Óli Stefán, en hann var með fjóra stráka úr 2. flokki á bekknum í kvöld.