Fotbolti.net
08.05.19 - 21:08
Daníel Smári Magnússon

Donni: Yfir mig hamingjusamur

Auglýsing
Donni var kátur í leikslok.

Donni var kátur í leikslok.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hertz
„Við erum mjög ánægðir með heildarframmistöðuna í dag og við sköpuðum okkur fullt af færum ofan á þessi mörk sem við skorum,"</i> sagði Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þór/KA eftir sigur liðsins á Fylki í Pepsi Max deild kvenna.
„Við höldum hreinu, mjög ánægð með það! Það er búið að liggja þungt á okkur og við náum að binda saman varnar- og sóknarleikinn í dag," bætti hann við.

Donni hrósaði Fylkisliðinu og sagðist hafa vitað að þær státuðu af góðu sóknarskipulagi og væru massívar varnarlega. Eftir jafnan fyrri hálfleik þá seig Þór/KA fram úr í þeim seinni.

Hann viðurkenndi að það hefði farið um sig þegar hvert færið af fætur öðru fór forgörðum: „Stundum er það þannig í fótbolta að ef að maður klárar ekki færin sín, þá fær maður það oftar en ekki í bakið og það hefur gerst hjá okkur."

„Ég hafði svo mikla trú á þessum stelpum og hef svo mikla trú á þessum stelpum, að það var aldrei spurning um að þær myndu klára þetta," sagði Donni

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.