Aníta Lísa: Fyrstu viðbrögð voru kannski 'helvítis'
Auglýsing

Aníta Lísa hér með Óskari Smára, en þau þjálfa Fram saman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Fram er í fyrsta sinn í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

„Fyrstu viðbrögð voru kannski 'helvítis' en þetta er bara auðvitað gaman líka," sagði Aníta Lísa Svansdóttir, þjálfari Fram, eftir að dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í dag.
Fram er í fyrsta sinn á þessu stigi keppninnar eftir að meistaraflokkur kvenna var endurvakinn hjá félaginu árið 2020. Fram dróst gegn Breiðabliki, sem er spáð því að verði í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í sumar, á útivelli.

„Við erum búin að vinna tvo góða leiki til að komast hingað. Það er bara skemmtilegt að fá að spreyta sig á móti eins góðu liði og Breiðablik er. Ég ætla samt ekki að segja að þetta hafi verið draumadráttur fyrir okkur."
„Það hefði verið draumur að fá eitthvað af þessum stóru liðum upp í Úlfarsárdal í flottu aðstöðuna okkar þar. Við erum ótrúlega stolt af liðinu að komast þessa leið. Ég held að félagið sé á mikilli uppleið."
Fram er búið að slá út HK og Aftureldingu, sem er spáð öðru og þriðja sæti í Lengjudeildinni í sumar. Fram er spáð níunda sæti deildarinnar.
„Við komum sjálfum okkur ekki á óvart með þessu. Þetta voru mjög erfiðir leikir báðir tveir. Þetta gefur okkur sjálfstraust eftir erfiðan vetur, að sýna að þetta sé að smella og vonandi getum við byggt ofan á þetta."
Aníta segir að leikurinn gegn Aftureldingu í gær hafi verið mjög jafn en hann fór í framlengingu þar sem Fram náði inn sigurmarki. Leikurinn þar á undan gegn HK var líka mjög erfiður og þá sérstaklega eftir að Henríetta Ágústsdóttir, leikmaður HK, ökklabrotnaði illa.
„Já, það var mjög sorglegur leikur að því leyti að Henríetta fótbrotnar illa. Leikurinn var stöðvaður í einhvern hálftíma. Það var sjokk fyrir alla en sá leikur spilaðist áfram. Við buðum HK-liðinu að stoppa eftir þetta en leikmenn vildu halda áfram sem var mjög sterkt hjá þeim andlega. Við tókum þetta í lokin," sagði Aníta en það má búast við mjög sterkri Lengjudeild í sumar.
„Þetta virðist vera eins og allir geti unnið alla sem er ótrúlega skemmtilegt og það gerir sumarið spennandi. Ég er ótrúlega spennt og ég er mjög glöð að þetta sé byrjað."
Hér fyrir ofan er viðtalið í heild sinni þar sem Aníta ræðir meira um leikinn gegn Breiðabliki og sumarið í Fram. Sonur Anítu, sem fæddist fyrr á þessu ári, fékk að vera með í viðtalinu.