Fotbolti.net
08.05.23 - 20:24
Sverrir Örn Einarsson

Hemmi Hreiðars: Leikurinn hefði farið jafntefli ef hann hefði dæmt rétt

Auglýsing
Hermann Hreiðarsson

Hermann Hreiðarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er óhætt að segja að það hafi verið dramatík í leik íBV og Víkinga á Hásteinsvelli sem fram fór fyrr í kvöld en Víkingar fóru með sigur af hólmi 1-0. Mark Víkinga kom á fimmtu mínútu uppbótartíma þegar Nikolaj Hansen setti boltann í netið eftir hornspyrnu sem Eyjamenn voru mjög ósáttir með að dæmd hefði verið, Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV var til viðtals að leik loknum.
„Þetta er náttúrlega hundfúlt af því að þetta eru í raun tvær rangar ákvarðanir dómara. Þetta er aldrei aukaspyrna á Elvis og svo er það útspark þegar að þeir fá hornið. Þarna eru tvö atriði og leikurinn hefði farið jafntefli ef hann hefði dæmt rétt. Það er ósköp einfalt og það er leikurinn. En hann dæmdi rangt og það kostaði og það er pirrandi, En þetta er ekki í fyrsta skipti sem að vafinn fer til stóru liðanna. “

Dwayne Atkinson og Richard King Jamaíkamennirnir sem Eyjamenn hafa beðið eftir undanfarnar vikur eru mættir til landsins og voru báðir í byrjunarliði ÍBV í kvöld. Hvernig fannst Hemma þeir mæta til leiks í treyju ÍBV?

„Frábærir, alveg frábærir. Eins og sniðnir fyrir okkar lið og skemmtilegir leikmenn. Að geta spilað svona nýkomnir og búnir að taka eina æfingu. Spila báðir niutíu mínútur bara geggjaðir. Þeir styrkja okkur og breikka hópinn og bæta.“

Hermann var að lokum spurður um stöðu leikmannahópsins og þeirra leikmanna sem frá eru vegna meiðsla.

„Jón Ingason er eitthvað frá og Sigurður Arnar það styttist nú í hann sem og Arnar Breka. Það er svona ekki alveg klárt en skýrist svona á næstu viku hvernig þeir verða. “

Sagði Hermann en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.