Fotbolti.net
08.06.13 - 07:03
Hafliði Breiðfjörð

Jagoba Arrasate tekur við Real Sociedad (Staðfest)

Sociedad er komið með nýjan þjálfara.

Sociedad er komið með nýjan þjálfara.

Canon

Mynd: Getty Images

Jagoba Arrasate hefur verið ráðinn nýr þjálfari spænska félagsins Real Sociedad en hann var aðstoðarmaður Philippe Montanier sem stýrði liðinu á leiktíðinni sem var að ljúka.
Montanier hefur sagt skilið við félagið.

Sociedad vann sér sæti í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa endað í fjórða sæti spænsku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Arrasate sem er 35 ára gamall spilaði með unglingaliðum Sociedad og fór svo að þjálfa í unglingaliðunum árið 2010 áður en hann fór í starfsmannateymi aðalliðsins.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.