08.06.16 - 10:53
Elvar Geir Magnússon
Sverrir Ingi: Viljum að sem flestir upplifi þetta með okkur
Auglýsing

Það var létt yfir íslenska hópnum á æfingu í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það gefur okkur pepp að fá svona myndbandsskilaboð frá því fólki sem er næst okkur,\" segir varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason um myndbandið skemmtilega sem landsliðsstrákarnir fengu að sjá í Leifsstöð í gær.
Í þessum skrifuðu orðum eru strákarnir að æfa á æfingavellinum í Annecy en Sverrir ræddi við Fótbolta.net fyrir æfinguna.
„Vonandi getum við leyft sem flestum að fylgjast með okkur svo fólk upplifi það sama og við erum að upplifa. Þetta er einstakt. Það er gríðarlega mikill spenningur fyrir því að spila fyrsta leik. Við gætum ekki verið mikið ánægðari.\"
„Við erum að gera þetta í fyrsta skipti en erum með þjálfara í Lars sem hefur farið í margar lokakeppnir og það hjálpar okkur.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar er Sverrir meðal annars spurður út í Cristiano Ronaldo.