Júlíus Mar Júlíusson hefur byrjað tímabilið með Kristiansund í Noregi vel. Hann hefur byrjað alla ellefu leiki tímabilsins hjá félaginu í norsku Eliteserien.
Júlíus gekk til liðs við norska félagið í upphafi árs eftir árs dvöl í KR. Nú er hann staddur í fríi á Íslandi og gerði hann sér leið upp á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og mætti í viðtal.
Júlíus gekk til liðs við norska félagið í upphafi árs eftir árs dvöl í KR. Nú er hann staddur í fríi á Íslandi og gerði hann sér leið upp á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og mætti í viðtal.
„Fyrstu mánuðurnir hafa verið mjög góðir. Mikið sem maður hefur lært, bý einn og stend svolítið á eigin fótum. Geggjaður tími og ógeðslega gaman“
Það er auðvitað mjög ánægjulegt líka að vera spila alla leiki og fá þessa reynslu í atvinnumannabolta. Hver leikur mjög mikilvægur. Maður er reynslunni ríkari strax eftir þessa fyrstu ellefu leiki.“
Hvernig er munurinn að koma úr Bestu deildinni og spila í efstu deild í Noregi?
„Þetta er öðruvísi, Norsarinn er meira í taktík. Þetta er ekki jafn frjálst og hérna á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR. Öðruvísi fótbolti og öðruvísi áherslur. Í Bestu deildinni er mikið hlaupið eins og í Noregi þannig menn þurfa að vera í góðu standi.“
Hrannar Snær Magnússon gekk sömuleiðis til liðs við Kristiansund í vetur og bjuggu þeir saman fyrstu mánuðina úti.
„Það er mjög skemmtilegt að hafa hann. Við bjuggum saman fyrstu þrjá mánuðina, geggjað að fara saman á æfingu. Gott að hafa hann með sér til að tala íslensku þegar maður skilur ekki norskuna. Gott að vera tveir saman í þessu,“ sagði Júlíus að lokum.
Nánar er rætt við Júlíus í spilaranum hér að ofan.























