Dean Henderson, fyrirliði Crystal Palace, er skotmark Xabi Alonso og Chelsea samkvæmt heimildum the Sun. Chelsea vill fá inn traustan markvörð en staðan hefur verið vandræðastaða síðustu ár.
Sami fjölmiðill segir að Tottenham hafi einnig áhuga á kappanum.
Sami fjölmiðill segir að Tottenham hafi einnig áhuga á kappanum.
Henderson er 29 ára og er hluti af enska landsliðinu sem undirbýr sig nú fyrir HM.
Hann er uppalinn hjá Carlisle og Manchester United, spilaði vel með Sheffield United á láni áður en Crystal Palace keypti hann 2023. Þar hefur hann unnið þrjá titla á síðustu 13 mánuðum og staðið sig mjög vel.
Robert Sanchez er aðalmarkvörður Chelsea og þeir Antonin Kinsky og Guglielmo Vicario berjast um stöðuna hjá Tottenham.


