Matt Ritchie hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann lék síðast með Reading. Hann er þekktari fyrir tíma sinn hjá Bournemouth, Newcastle og skoska landsliðinu þar sem hann lék 16 leiki.
Ritchie mun fara í starf hjá Bournemouth, tekur við starfi Simon Francis sem tæknilegur ráðgjafi (e. technical director) hjá félaginu. Francis hafði verið í 15 ára hjá félaginu.
Ritchie mun fara í starf hjá Bournemouth, tekur við starfi Simon Francis sem tæknilegur ráðgjafi (e. technical director) hjá félaginu. Francis hafði verið í 15 ára hjá félaginu.
Ritchie er fæddur 1989 og er uppalinn hjá Portsmouth. Hann var leikmaður Bournemouth á árunum 2013-16. Alls lék hann 184 leiki í úrvalsdeildinni, skoraði tólf mörk og lagði upp 24.
Hann átti ár eftir af samningi sínum við Reading en ákvað að kalla þetta gott og taka næsta skref á sínum ferli og líka fjölskyldunnar vegna.


