Vestri varð fyrir höggi á dögunum þegar einn af lykileikmönnum liðsins meiddist.
Vladimir Tufegdzic, eða Túfa, meiddist í leik Vestra og Fjölnis síðasta sunnudag og verður frá í 5-7 vikur. Frá þessu er greint á facebook-síðu Vestra.
Vladimir Tufegdzic, eða Túfa, meiddist í leik Vestra og Fjölnis síðasta sunnudag og verður frá í 5-7 vikur. Frá þessu er greint á facebook-síðu Vestra.
Túfa er þrítugur Serbi sem er á sínu öðru ári hjá Vestra. Hann hefur byrjað þetta tímabil vel og hefur skorað sex mörk í tíu deildarleikjum.
Sóknarmaðurinn hefur einnig spilað með Grindavík, Víkingi og KA hér á landi en hann kom fyrst til Íslands árið 2015.
Vestri vann leikinn gegn Fjölni 2-1. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir