Fotbolti.net
08.07.23 - 20:53
Ingi Snær Karlsson

Nik Chamberlain: „Frábær frammistaða með og án bolta"

Auglýsing
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mjög mjög glaður, við vissum alltaf að þetta yrði taktískur leikur og alltaf gott að taka stigin þrjú að þessu sinni. Síðustu leikir hafa ekki fallið með okkur en í dag var þetta frábær frammistaða með og án bolta. " sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar eftir sigurinn.
„Stelpurnar gátu aðlagast þegar við vorum að breyta um leikkerfi, það er hvernig fyrsta markið kom og við nýttum plássin. Við vorum mjög agaðar, við héldum boltanum vel og þvinguðum ekkert eins og við höfum gert í síðustu leikjum."

Þetta er það sem Nik hafði að segja um mörkin tvö sem Þróttur skoruðu:

„Fyrsta markið var vel gert. Vel gert einn á einn og í seinna markinu tók Sierra hlaupið á blindu hliðina og var með góða yfirvegun. Það voru ekki mörg færi í leiknum en flott mörk."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.