
Sterkasta lið 12. umferðar - Kyssti merkið

Atli Þór Jónasson, sem er á láni hjá Fram frá Víkingi, kyssti merki Fram þegar hann fagnaði marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markus Nakkim skoraði tvö fyrir Val fyrir norðan.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Elís Þrándarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór Jónasson, sem er á láni hjá Fram frá Víkingi, kyssti merki Fram þegar hann fagnaði marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram á tvo fulltrúa í Sterkasta liði umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar. Varnarmaðurinn Þorri Stefán Þorbjörnsson er einnig í liðinu. Fram situr í þriðja sæti.

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar

KR, sem er í öðru sæti, tapaði óvænt fyrir Keflavík. Marin Mudrazija skoraði tvö mörk í 3-2 sigri Keflavíkur og Davíð Helgi Aronsson var mjög öflugur í vörninni. Haraldur Freyr Guðmundsson er þá þjálfari umferðarinnar.
Víkingur vann 4-1 útisigur á Breiðabliki í stórleik umferðarinnar. Helgi Guðjónsson skoraði tvö mörk og var maður leiksins. Aron Elís Þrándarson skoraði eitt og átti stoðsendingu, auk þeirra er Gylfi Þór Sigurðsson í úrvalsliðinu.
Markus Nakkim skoraði tvö mörk og var maður leiksins þegar Valur vann 4-2 útisigur gegn Þór. Tryggvi Haraldsson var síógnandi í gegnum allan leikinn og skoraði síðasta markið.
Þá vann Stjarnan 3-1 sigur á KA þar sem Birnir Snær Ingason var valinn maður leiksins. Stubbur, Steinþór Már Auðunsson markvörður, var besti leikmaður KA. FH og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli en enginn úr þeim leik kemst í úrvalsliðið.
Atli Þór skoraði mörkin í sterkum sigri Framara! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/KqmKSjh3Rf
— Besta deildin (@bestadeildin) June 30, 2026
Marin Mudražija skoraði tvö snyrtileg mörk í sigrinum gegn KR! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/7vufnHFf6g
— Besta deildin (@bestadeildin) June 29, 2026
Fyrri úrvalslið:

Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings

Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir

Sterkasta lið 8. umferðar - Vatnhamar í fimmta sinn

Sterkasta lið 7. umferðar - Nýja stjarnan heldur áfram að skína

Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft

Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn

Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti

Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja

Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur

Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Markus Nakkim skoraði tvö fyrir Val fyrir norðan.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Elís Þrándarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 13 | +14 | 28 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 13 | -2 | 19 |
| 6 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 7 | ÍA | 12 | -7 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 13 | -3 | 14 |
| 9 | ÍBV | 12 | -5 | 12 |
| 10 | KA | 12 | -8 | 10 |
| 11 | FH | 12 | -13 | 7 |
| 12 | Þór | 12 | -21 | 7 |






