Lið og leikmaður 11. umferðar - Birkir Már steig vélmennadans

Birkir Már Sævarsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Shkelzen Veseli skoraði sigurmark Leiknis gegn ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jóhann Þór Arnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Már Sævarsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Reynsluboltinn Birkir Már Sævarsson er ótrúlegur og hefur verið gríðarlega öflugur sem hægri kantmaður hjá Aftureldingu að undanförnu. Hann er leikmaður 11. umferðar Lengjudeildarinnar eftir að hafa lagt upp og skorað í 2-0 sigri gegn Njarðvík.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR:
Birkir Már Sævarsson - Afturelding
„Birkir náttúrulega leggur upp eitt og skorar annað, segir sitt um orkuna í honum. Það er megavika hjá Dominos í dag í Mosfellsbæ bara. Þannig að vonandi fáum við það aftur í næsta leik. Hann skorar alltaf þegar það er megavika þannig að við erum búnir að plana þetta með Dominos," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir leik.
Birkir Már, sem er 41 árs, innsiglaði sigurinn eftir frábæran sprett og tók fagn þar sem hann hermdi eftir Domino's vélmenninu. Markið og fagnið má sjá hér.

TENGT EFNI
Vonast eftir megaviku í næsta leik: Borða pítsu og skora mörk

Afturelding, sem er í öðru sæti Lengjudeildarinnar, á tvo aðra leikmenn í úrvalsliðinu. Það eru varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson og Joachim Holtan sem skoraði fyrra markið gegn Njarðvík og skoraði svo þrennu í 8-1 sigri gegn Ægi í gær en það var leikur sem tilheyrir 9. umferð en var færður.
Topplið Þróttar gerði 1-1 jafntefli gegn Vestra en Marvin Darri Steinarsson, markvörður Vestra, var valinn maður leiksins.
Fylkir, sem er í þriðja sæti, tapaði 0-2 á heimavelli gegn HK í leik þar sem HK-ingar misstu tvo menn af velli með rautt í lokin. Atli Þór Gunnarsson og Jóhann Þór Arnarsson eru fulltrúar HK í úrvalsliðinu. Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar.
Leiknir vann Breiðholtsslaginn gegn ÍR 2-1. Shkelzen Veseli var maður leiksins og skoraði sigurmarkið, Eiríkur Örn Beck bjargaði á marklínu í lokin. Sigurður Karl Gunnarsson varnarmaður ÍR kemst einnig í liðið.
Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld jafnaði fyrir Gróttu í lokin gegn Völsungi á Húsavík, 2-2. Arnór Gauti Úlfarsson í Grindavík var maður leiksins í markalausu jafntefli gegn Ægi.
Fyrri úrvalslið:
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Shkelzen Veseli skoraði sigurmark Leiknis gegn ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jóhann Þór Arnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 11 | +13 | 23 |
| 2 | Afturelding | 11 | +15 | 22 |
| 3 | Fylkir | 11 | +4 | 21 |
| 4 | Vestri | 12 | +2 | 20 |
| 5 | HK | 11 | +2 | 19 |
| 6 | Leiknir R. | 11 | +2 | 18 |
| 7 | Njarðvík | 11 | +2 | 14 |
| 8 | Grótta | 10 | -5 | 13 |
| 9 | ÍR | 11 | -6 | 11 |
| 10 | Grindavík | 10 | -3 | 9 |
| 11 | Ægir | 12 | -15 | 8 |
| 12 | Völsungur | 11 | -11 | 7 |