Fotbolti.net
08.08.21 - 22:24
Sverrir Örn Einarsson

Eysteinn: Við vorum í hálfgerðu gufubaði

Auglýsing
Eysteinn: Við vorum í hálfgerðu gufubaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

„Slakur fyrri hálfleikur. Við vorum í hálfgerðu gufubaði og það gerist. En strákarnir börðu sig saman og við vissum að það þyrfti bara eitt móment þetta var bara eitt mark og þeir áttu bara skilið að jafna og ég held að þetta séu bara nokkuð sanngjörn úrslit,“
sagði Eysteinn Húni Hauksson annar af þjálfurum Keflavíkur um sín fyrstu viðbrögð eftir 1-1 jafntefli Keflavíkur og Fylkis fyrr í kvöld.
Keflvíkingar sáu ekki til sólar fyrstu 30 mínútur leiksins og voru langt á eftir Fylki í öllum sínum aðgerðum. Hvað var það sem klikkaði? Kom Fylkisliðið þeim á óvart eða voru menn hreinlega ekki klárir?

„Menn voru einhverra hluta vegna ekki klárir. Menn ætla sér það auðvitað ekki og halda sig tilbúna en svo kemur upp einhver staða að menn ná ekki takti og ná ekki sambandi hver við annan og þetta gerist. Þetta gerðist þegar ég var að spila og ég man alveg eftir svona leikjum. Þetta er bara einn af þessum hlutum og þegar það gengur svona illa þá annaðhvort rífur þú þig í gang eins og við gerðum eða heldur þessu áfram og ég er bara ánægður með það að við skyldum landa hérna stigi.“

Næsti leikur Keflavíkur í 16,liða úrslitum Mjólkurbikarsins næstkomandi miðvikudag. Liðin mættust í síðustu umferð deildarinnar þar sem KA hafði 2-1 sigur. Hvernig leggst sá leikur í Eystein?

„Bara mjög vel. Við erum búnir að sjá það á þessum leikjum að KA er bara hrikalega gott lið sem er með margi refi innan sinna raða og allar tegundir af leikmönnum, fljóta og sterka og annað slíkt. Þetta er áskorun fyrir okkur að þeir vinni okkur ekki í þriðja skiptið í sumar en við gerum allt sem við getum á þessum stutta tíma sem við höfum til þess að hafa liðið í standi og ég hef fulla trú á því að við getum slegið KA menn út.“

Sagði Eysteinn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.