08.08.21 - 10:20
Brynjar Ingi Erluson
Messi í tárum á Nou Camp - „Ég var ekki tilbúinn í þetta"

Lionel Messi grét þegar hann tilkynnti að hann væri á förum

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA

Lionel Messi grét er hann tilkynnti að hann væri á förum frá Barcelona eftir 21 ár hjá félaginu. Blaðamannafundur er í gangi á Nou Camp um þessar mundir.
Messi kom til Barcelona þegar hann var aðeins þrettán ára gamall og hefur allt sem hægt er að vinna með félaginu.
Hann var ekki tilbúinn fyrir þennan blaðamannafund í dag og gat ekki haldið aftur tárunum þegar hann hófst á Nou Camp.
Barcelona á ekki möguleika á að skrá hann í hópinn vegna reglna spænsku deildarinnar. Hann er á leið til Paris Saint-Germain en hér fyrir neðan má sjá tilkynningu hans á fundinum.
„Ég hef hugsað mikið um hvað ég hef ætlað að segja og sannleikurinn er sá að þetta er svo erfitt fyrir mig eftir öll þessi ár og verið hér alla mína tíð. Ég er ekki tilbúinn fyrir þetta og eftir ruglið á síðasta ári þá var ég sannfærður um hvað ég ætlaði að segja," sagði Messi.
„Ég og fjölskyldan vorum viss um að vera hér áfram og við vildum ekkert annað. Við vorum heima og við héldum að við við yrðum hérna í borginni en í dag verð ég að kveðja."
„Ég hef verið hérna frá 13 ára aldri og eftir 21 ár þá er ég að yfirgefa borgina með konunni og börnum. Ég hef lofað börnunum mínum að koma aftur og ég er svo þakklátur fyrir allt og alla liðsfélagana og fyrrum liðsfélaga og félagið hefur alltaf staðið með mér."
„Það er svo mikið af fólki sem ég hef hitt oft og ég ber svo mikla virðingu fyrir þessu félagi og ég vil bara þakka fyrir alla þessa reynslu og alla þessa fallegu hluti sem hafa átt sér stað. Þetta hefur hjálpað mér að bæta mig og gert mig að þeirri persónu sem ég er í dag."
„Ég hef gefið allt fyrir þetta félag og treyjuna. Frá fyrsta degi og fram að þeim síðasta. Núna er ég á förum og ég er svo þakklátur fyrir allan stuðninginn. Ég bjóst aldrei við að þurfa að kveðja og hvað þá á þennan hátt."
„Það hefur verið erfitt að hafa ekki stuðninginn eftir þennan heimsfaraldur og ég yfirgef eftir að hafa ekki séð stuðningsmenn í eitt og hálft ár. Ég vildi geta ímyndað mér með fullan völl og verið nálægt fólkinu en ég get það ekki. Svona verður þetta að vera en ég vil aftur þakka fyrir alla ástina sem ég hef fengið öll þessi ár og ástin hefur alltaf verið sú sama."
„Ég vona að ég get komið aftur og verið partur af þessu félagi á einhvern hátt og komið með eitthvað til að hjálpa félaginu að vera það besta í heimi. Ég er að gleyma svo mörgu sem mig langaði að segja en þetta er það eina sem ég get sagt núna. Ég hef hugsað þetta lengi en ég finn ekki orðin. Takk fyrir allt," sagði Messi á blaðamannafundinum í tárum.
Við birtum frekari fréttir af þessum tilfinningaþrungna degi á Nou Camp.

Lionel Messi in tears as he bids farewell to Barcelona... 🔴🔵 pic.twitter.com/8NqhBmEeID
— Sky Sports News (@SkySportsNews) August 8, 2021

Mynd: EPA