Fotbolti.net
08.08.23 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Stór sekt fyrir Chelsea - Undir rannsókn hjá úrvalsdeildinni

Todd Boehly keypti Chelsea í fyrrasumar og er einnig eigandi RC Strasbourg í Frakklandi, auk þess að eiga hafnaboltalið Los Angeles Dodgers.

Todd Boehly keypti Chelsea í fyrrasumar og er einnig eigandi RC Strasbourg í Frakklandi, auk þess að eiga hafnaboltalið Los Angeles Dodgers.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýir eigendur Chelsea eru að glíma við ýmis mál frá fyrra eignarhaldi félagsins, þegar rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich réði ríkjum.

Í lok júlí var Chelsea sektað um 10 milljónir evra af UEFA, evrópska knattspyrnusambandinu, vegna ófullnægjandi fjármálaskýrsla frá árunum 2012 til 2019.

Nú er enska úrvalsdeildin einnig með félagið til rannsóknar vegna brota frá stjórnartíð Abramovich. Chelsea er undir rannsókn vegna mögulegra fjármálabrota en það voru nýir eigendur félagsins sem tilkynntu fótboltayfirvöldum bæði í Evrópu og á Englandi um möguleg brot á fjármálareglum eftir að þeir tóku við eignarhaldi þess í fyrrasumar.

Sky Sports greinir frá þessu og tekur fram að stjórnendur Chelsea neita að tjá sig um málið. Líklegt er að félagið verði sektað ef í ljós koma brot á fjármálareglum úrvalsdeildarinnar. Ef brotin eru stórfelld gætu stig verið dregin af.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.