Viðar Ari: Ánægðastur með að vera kominn í FH og spila fótbolta aftur

Viðar Ari Jónsson snéri aftur í lið FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Ari Jónsson snéri aftur í lið FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tóku á móti toppliði Víkings á Kaplakrikavelli núna í kvöld þegar 18.umferð Bestu deildarinnar hélt áfram göngu sinni.
FH komust aftur á sigurbraut í síðustu umferð og freistuðu þess að halda áfram á sigurbraut en Víkingar reyndust þeim hreinlega of sterkir.
„Alltaf skemmtilegt og stoltur af því að vera kominn í FH og tilfiningin er bara góð en kannski ekki sérstök akkurat núna." Sagði Viðar Ari Jónsson leikmaður FH en hann var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið síðan hann snéri heim úr atvinnumennsku.
„Við byrjum mjög vel og skorum þetta mark og síðan droppum við svolítið og fáum þarna jöfnunarmarkið og eftir það er seinni hlutinn af fyrri hálfleik svolítið erfiður fyrir okkur og erum mikið að verjast og síðan byrjum við seinni hálfleik af krafti en fáum síðan tvö mörk á okkur og þetta endar 3-1 og jújú þetta var bara ágætis leikur en það er enginn glaður núna."
FH fengu fín færi í leiknum og má segja að það sem skyldi á milli liðana var að Víkingar refsuðu á meðan FH náðu því ekki.
„Sammála því og það er bara eitthvað sem að við þurfum að vinna í og þetta á eftir að detta fyrir okkur í næstu leikjum, þetta var ágætt í kvöld en úrslitin ekki þau sem við vildum."
Viðar Ari kom heim úr atvinnumennsku en hann byrjaði á að æfa með Fram áður en hann samdi svo við FH.
„Já bara eitthvað verið að tjékka á hinum og þessum hlutum, þetta er mjög löng saga en það sem ég er ánægðastur með er að vera kominn hérna í FH og bara spila fótbolta aftur, það er númer eitt."
Nánar er rætt við Viðar Ara Jónsson í spilaranum hérna fyrir ofan.




