08.08.26
Spáin fyrir enska - 15. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Við höldum áfram að opinbera spá okkar á Fótbolta.net fyrir ensku úrvalsdeildina. Það styttist heldur betur í það að tímabilið fari að rúlla.
Núna segjum við frá því hvaða lið er í 15. sæti í spá fréttamanna en það er Fulham.

Fulham var hársbreidd frá Evrópusæti á síðasta tímabili þrátt fyrir að enda í neðri hluta töflunnar. Með aðeins einu marki til viðbótar í næstsíðustu umferðinni hefði liðið tryggt sér sæti í Evrópudeildinni, sem segir sitt um hversu jöfn baráttan var. Engu að síður er félagið að fara inn í nýtt tímabil með talsverðum breytingum eftir að Marco Silva kvaddi félagið eftir farsælt tímabil við stjórnvölinn.
Í hans stað er kominn Álvaro Arbeloa, sem tekur við sínu fyrsta starfi sem aðalþjálfari í ensku úrvalsdeildinni. Spánverjinn kemur með sterkan orðstír úr akademíu Real Madrid og stutta reynslu við að stýra aðalliði félagsins, en verkefnið hjá Fulham verður allt annars eðlis. Hann erfir lið sem hefur misst tvo af sínum sterkustu sóknarleikmönnum, Harry Wilson og Raúl Jiménez, sem komu að rúmlega helmingi marka liðsins á síðasta tímabili.
Fulham hefur verið eitt stöðugasta miðjulið deildarinnar undanfarin ár, en spurningin er hvort það haldi áfram undir nýjum stjóra. Félagið þarf að fylla stór skörð í sókninni og finna nýjar lausnir ef það ætlar sér að taka næsta skref. Á sama tíma gæti minna leikjaálag en hjá mörgum keppinautum reynst kostur og gefið Fulham tækifæri til að blanda sér í baráttuna um efri hluta töflunnar.
Stjórinn: Álvaro Arbeloa er eitt stærsta spurningamerkið í deildinni fyrir komandi tímabil. Þessi fyrrverandi bakvörður Liverpool, Real Madrid og spænska landsliðsins hefur byggt upp þjálfaraferil sinn innan akademíu Real Madrid áður en hann fékk stutt tækifæri með aðalliðinu. Nú fær hann í fyrsta sinn það verkefni að stýra liði yfir heilt tímabil í einni erfiðustu deild heims. Arbeloa vill sjá lið sín spila boltanum, pressa hátt og stjórna leikjum með miklum krafti. Hann talar rosalega mikið um hugrekki. Ef honum tekst að koma þeirri hugmyndafræði hratt inn hjá Fulham gæti félagið komið skemmtilega á óvart, en það fylgir ráðningunni einnig töluverð áhætta.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Arbeloa hefur sótt tvo leikmenn sem hann þekkir frá Real Madrid og fleiri gætu verið á leiðinni.
Komnir:
Gonzalo García frá Real Madrid - 34,3 milljónir punda
César Palacios frá Real Madrid - 8,6 milljónir punda
Jonah Kusi-Asare frá Bayern München - 5,2 milljónir punda
Farnir:
Issa Diop til Ipswich - 8,5 milljónir punda
Harry Wilson til Leeds - Á frjálsri sölu
Raúl Jiménez til Wolves - Á frjálsri sölu
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Calvin Bassey
Bassey var mjög sterkur á síðasta tímabili. Hann var í öðru sæti í valinu á leikmanni ársins hjá félaginu á eftir Harry Wilson sem fór til Leeds á frjálsri sölu í sumar. Með nýjan stjóra við stjórnvölinn verður hann enn mikilvægari sem leiðtogi í varnarleiknum og ef Fulham ætlar sér að halda áfram að berjast um að komast í efri hluta deildarinnar verður Bassey að halda uppi sömu gæðum og hann sýndi á síðasta tímabili.
Gaman að fylgjast með: Gonzalo García
Einn áhugaverðasti nýliðinn í ensku úrvalsdeildinni fyrir komandi tímabil. Spænski framherjinn kemur til Fulham frá Real Madrid, þar sem hann sló í gegn með Castilla-liðinu áður en hann fékk tækifæri með aðalliðinu. Fulham greiddi umtalsverða upphæð fyrir þennan 22 ára gamla framherja en Álvaro Arbeloa þekkir hann vel úr yngri liðum Real Madrid.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan fyrir Fulham væri að koma sér í efri hlutann og ná Evrópusæti, en versta niðurstaðan er hörð fallbarátta. Eins og áður segir er ákveðin áhætta að ráða Arbeloa sem er ekki reynslumikill stjóri. Hvernig höndlar hann pressuna?
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Mynd: Fulham
Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig