08.09.20 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Batshuayi líklega á leið aftur til Crystal Palace

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Crystal Palace er í viðræðum um að fá framherjann Michy Batshuayi aftur á láni frá Chelsea.
Batsuhayi skoraði sex mörk í þrettán leikjum á láni hjá Palace síðari hlutann á þarsíðasta tímabili.
Í dag er Batsuhayi á eftir Timo Werner, Olivier Giroud og Tammy Abraham í röðinni hjá Chelsea.

Líklegt er að Batsuhayi geri nýjan samning við Chelsea áður en hann fer á lán þar sem félagið vill ekki missa hann frítt næsta sumar.
Batsuhayi mun vera í byrjunarliði Belgíu gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í kvöld en hann mun leiða línuna í fjarveru Romelu Lukaku sem er meiddur.