Það verður enginn aukvisi með flautuna á Laugardalsvelli á föstudagskvöld þegar Ísland og Frakkland mætast í mikilvægum leik í undankeppni EM.
Ítalinn Gianluca Rocchi dæmir leikinn en hann er talinn einn besti dómari heims. Aðstoðardómarar verða landar hans Filippo Meli og Giorgio Peretti og fjórði dómari Massimiliano Irrati.
Ítalinn Gianluca Rocchi dæmir leikinn en hann er talinn einn besti dómari heims. Aðstoðardómarar verða landar hans Filippo Meli og Giorgio Peretti og fjórði dómari Massimiliano Irrati.
Rocchi hefur dæmt fjölmarga stórleiki í Meistaradeild Evrópu og þá dæmdi hann úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr á þessu ári, þegar Chelsea og Arsenal áttust við.
Hann var valinn dómari ársins 2018 í ítölsku A-deildinni en sama ár starfaði hann við dómgæslu á HM í Rússlandi.
Á HM dæmdi hann þrjá leiki; Portúgal - Spán, Japan - Senegal og Brasilíu - Mexíkó.
Athugasemdir