Fotbolti.net
08.10.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Wijnaldum: Við erum ekki orðnir meistarar

Wijnaldum: Við erum ekki orðnir meistarar
Canon

Mynd: Getty Images

„Við teljum ekki að við séum orðnir meistarar. Það væri mög rangt að gera það," segir Georginio Wijnaldum, miðjumaður Liverpool.

Liverpool hefur unnið alla átta leiki sína á tímabilinu og er með átta stiga forskot á Manchester City í augnablikinu. Wijnaldum er þó alls ekki byrjaður að fagna.
„Ég er viss um að stjórinn mun halda okkur á jörðinni og segja okkur að við þurfum að hugsa um sjálfa okkur, reyna að spila vel og gefa 100% í hverri viku."

„Við þurfum að gera það sama og áður, passa upp á okkur og horfa ekki of mikið á hin liðin því við stjórnum ekki hvað þau gera. Við getum ekki stýrt frammistöðu hjá öðrum liðum."

„Við þurfum að vera klárir í leikina sem eru framundan og reyna að ná góðum úrslitum því að við vitum að þetta getur verið fljótt að breytast."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.