WBA og Tottenham mætast í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni klukkan 12:00 í beinni hjá Síminn Sport.
Tottenham getur með sigri hoppað á toppinn í deildinni, um stundarsakir að minnsta kosti, WBA er á meðan í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu en heitt er undir Slaven Bilic stjóra liðsins.
Gareth Bale er í byrjunarliði í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann skoraði sigurmarkið gegn Brighton um síðustu helgi. Bale kemur inn í liðið fyrir Erik Lamela sem er meiddur.
Branislav Ivanovic, Matheus Pereira og Grady Diangana detta út úr liðinu hjá WBA en þeir Kyle Bartley, Dara O’Shea og Connor Robinson koma inn.

WBA Johnstone, Furlong, Bartley, Ajayi, O’Shea, Townsend, Krovinovic, Livermore, Gallagher, Robinson, Grant.
Tottenham Lloris, Doherty, Alderweireld, Dier, Reguilon, Sissoko, Hojbjerg, Bale, Ndombele, Son, Kane.
Athugasemdir