08.11.21 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
25 þúsund mættu þegar Xavi var kynntur

Xavi og forseti Barcelona, Joan Laporta.

Mynd: EPA

Það var mikið um dýrðir á Nývangi í dag þegar Xavi Hernandez var kynntur sem nýr stjóri Barcelona. Yfir 25 þúsund stuðningsmenn voru mættir til að bjóða Xavi velkominn heim.
Sem leikmaður vann hann fjölmarga titla með Börsungum. Hann varð átta sinnum Spánarmeistari og vann Meistaradeildina fjórum sinnum. Hann er einn besti miðjumaður í sögu félagsins.

Xavi skrifaði formlega undir samning sem gildir til sumarsins 2024. Hann hefur síðustu sex ár verið í Katar, fyrst sem leikmaður Al Sadd og svo þjálfari liðsins síðustu tvö ár.
„Draumur hefur ræst. Það var draumur minn að snúa aftur og taka ábyrgð. Það er mikil vinna framundan en ég er spenntur fyrir því að byrja. Barca er heimili mitt en ég veit að ég ber mikla ábyrgð," segir Xavi.

And there it is! pic.twitter.com/yFdrGsEuNi
— FC Barcelona (@FCBarcelona) November 8, 2021

Mynd: EPA