Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   mið 08. nóvember 2023 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hinn 15 ára gamli Camarda fer á kostum með U19 liði AC Milan
Skoraði stórglæsilegt mark í gær
Francesco Camarda.
Francesco Camarda.
Mynd: Getty Images
Hinn 15 ára gamli Francesco Camarda er klárlega einn efnilegasti fótboltamaður í heimi í dag. Hann skoraði í gær stórglæsilegt mark í Evrópukeppni unglingaliða.

Camarda er á mála hjá AC Milan en hann hefur verið orðaður við önnur stór félög í Evrópu á síðustu mánuðum, þar á meðal Manchester City.

Hann hefur brotið hvert markametið á fætur öðru í barna- og unglingaliðum Milan en hann er byrjaður að spila með U19 liðinu þrátt fyrir að vera bara 15 ára.

Á þessu tímabili er hann búinn að gera 11 mörk í 17 leikjum fyrir U19 lið AC Milan og U17 landslið Ítalíu. Hann er að skora mark á 76. mínútna fresti.

Þetta er klárlega nafn til að fylgjast með en hér fyrir neðan má sjá stórkostlegt mark sem hann skoraði í gær gegn PSG.


Athugasemdir
banner