Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 09. janúar 2020 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Annar leikmaður frá Juventus til Al Duhail (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Framherji Juventus, Kwang-Son Han er genginn í raðir Al Duhail í Katar. Han mun leik þar með Mario Mandzukic sem einnig gekk í raðir katarska félagsins frá Juventus á dögunum.

Hinn 21 árs gamli Han gekk í raðir Juventus á gluggadeginum síðasta sumar á um fimm milljónir evra frá Cagliari, samningurinn var þannig að Juventus fékk hann á láni í tvö ár og þurfti að greiða kostnaðinn í kjölfarið.

Han lék með U23 ára liði Juventus fyrri hluta tímabilsins og talið er að með þessum skiptum þurfi Juventus ekki að greiða Cagliari.

Kaupverðið sem Al Duhail greiðir er talið fara beint til Cagliari. Han gekkst undir læknisskoðun í gær hjá katarska félaginu. Han er talinn kosta Al Duhail rúmlega fjórar milljónir punda (sama og Juventus átti að greiða Cagliari fyrir leikmanninn eftir eitt og hálft ár).

Han hefur leikið tíu landsleiki fyrir Norður-Kóreu og skorað í þeim eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner