banner
   fim 09. janúar 2020 16:44
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Orri til KR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson hefur samið við KR til tveggja ára.

Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2021. Guðjón kemur frá Stjörnunni þar sem hann var varamarkvörður síðustu tvö ár.

Guðjón segist í samtali við heimasíðu KR vera gríðarlega ánægður með vistaskiptin og hann hlakki mikið til komandi tíma hjá félaginu.

Rúnar Kristins hafði þetta um Guðjón að segja: „Við KR ingar erum gríðarlega ánægðir með að fá þennan reynslumikla markmann til félagsins. Guðjón mun styrkja okkar góða hóp fyrir komandi sumar og hlökkum við til að vinna með honum í KR."

Beitir Ólafsson hefur verið aðalmarkvörður KR síðustu ár en liðið er ríkjandi Íslandsmeistari.
Athugasemdir
banner
banner
banner