Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Oostende sem mætti Sporting Charleroi í belgísku deildinni í dag.
Ari spilaði 72. mínútur í kvöld og lagði hann upp fyrsta mark leiksins sem Fashion Sakala skoraði.
Gestirnir jöfnuðu áður en heimamenn komust síðan í 3-1. Sporting náði að minnka muninn undir lokinn en nær komust þeir ekki og góður sigur hjá Ara Frey og félögum í Oostende.
Oostende er í níunda sæti deildarinnar með 28 stig eftir 19 umferðir.
Athugasemdir