Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 09. janúar 2021 18:05
Aksentije Milisic
Martinelli meiddist á hné í upphitun
Mynd: Getty Images
Nú stendur yfir leikur Arsenal og Newcastle í þriðju umferð FA bikarsins.

Hinn efnilegi Gabriel Martinelli hefur verið að stíga til baka eftir erfið hnémeiðsli og átti hann að vera í byrjunarliðinu í leiknum í kvöld.

Martinelli meiddist hins vegar á hné í upphitun og meiðslin virtust líta illa út. Hann virtist hafa fest takkanna í grasinu á Emirates vellinum og þannig snúið upp á hnéið.

Ian Wright, goðsögn Arsenal, sagði í útvarpinu að meiðslin litu illa út og að þetta sé klárlega áhyggjuefni fyrir Arsenal og Martinelli.

Reiss Nelson kom inn í liðið fyrir Martinelli en staðan í leiknum þessa stundin er 0-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner