Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. janúar 2022 18:23
Brynjar Ingi Erluson
Afríkukeppnin: Gestgjafarnir unnu fyrsta leik - Tvö víti á fimm mínútum
Það var hart barist í opnunarleiknum
Það var hart barist í opnunarleiknum
Mynd: EPA
Gustavo Sangare skoraði fyrsta mark mótsins
Gustavo Sangare skoraði fyrsta mark mótsins
Mynd: EPA
Kamerún 2 - 1 Búrkína Fasó
0-1 Gustavo Sangare ('24 )
1-1 Vincent Aboubakar ('40, víti )
2-1 Vincent Aboubakar ('45, víti )

Kamerún, gestgjafi Afríkukeppninnar, vann Búrkína Fasó 2-1 í A-riðli í opnunarleik mótsins í dag en hann var spilaður á Stadio Olembe, stærsta leikvangi Kamerún.

Eins og við var búast byrjaði þetta með látum. Steeve Yago, leikmaður gestanna, var nálægt því að næla sér í rautt spjald á fyrstu mínútunni er hann fór í hættulega tæklingu en var heppinn að sleppa með aðeins gult.

Fimm leikmenn Búrkína Fasó voru frá vegna Covid og þá var liðið einnig án þjálfarans, Kamou Malo, en það var barátta í þeim þrátt fyrir það og komst liðið yfir á 24. mínútu með marki frá Gustavo Sangare.

Búrkína Fasó fékk horn og tókst Kamerún að hreinsa á línu. Sangare fékk boltann aftur vinstra megin, reyndi fyrirgjöf, sem fór þverslá. Boltinn barst næst til Bertrand Traore hægra megin sem kom með laglega fyrirgjöf og þar var Sangare mættur á fjær og afgreiddi boltann snyrtilega í netið. Þvílík atburðarrás.

Kamerún fékk víti á 38. mínútu. Bertrand Traore fór klaufalega í Anguissa-Frank Zambo. Dómarinn nýtti sér VAR og dæmi vítaspyrnu sem Vincent Aboubakar skoraði úr.

Nokkrum mínútum síðar fengu heimamenn aðra vítaspyrnu eftir að Issoufou Dayo þrumaði niður Nouhou Tolo. Klárt víti og aftur var það Aboubakar sem skoraði eftir skemmtilegt tilhlaup á punktinum.

Traore var nálægt því að jafna þegar tíu mínútur voru búnar af síðari hálfleik. Hann tók aukaspyrnu og það var hreinsað á línu áður en Andre Onana varði meistaralega.

Aboubakar skoraði stuttu síðar eftir skyndisókn en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Kamerún fór með sigur af hólmi í fyrsta leik A-riðilsins. Búrkína Fasó barðist af krafti en náði ekki að finna jöfnunarmarkið og lokatölur því 2-1 fyrir Kamerún.
Athugasemdir
banner
banner