Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 09. janúar 2023 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Joao Felix verður áfram hjá Atletico
Mynd: Getty Images

Enrique Cerezo forseti Atletico Madrid segir að það séu meiri líkur en minni að Joao Felix verði áfram hjá félaginu þegar janúar glugginn lokar.


Felix hefur verið orðaður við Manchester United og Arsenal.

Talað er um að samband Felix og Diego Simeone stjóra Atletico sé ekki gott og Felix vilji fara frá félaginu.

„Það er ekkert ómögulegt í lífinu en það lítur út fyrir að Joao Felix verði áfram hjá Atletico Madrid," sagði Cerezo.

Atletico er sagt vilja 9.5 milljónir punda í lánsfé og með klásúlu um að félagið sem fær hann geti keypt hann á 70 milljónir punda síðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner