Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. febrúar 2021 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Lítill íslenskur Kulusevski"
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítalski fjölmiðillinn TuttoMercatoWeb fjallar á vefsíðu sinni um unga og efnilega leikmenn.

Í greinum sínum líkja þeir ungu leikmönnunum við aðra fótboltamenn.

Ísak var tekinn fyrir á vefsíðunni í dag og er honum líkt við hinn sænska Dejan Kulusevski sem er á mála hjá Juventus. „Lítill íslenskur Kulusevski," segir í fyrirsögninni.

Kulusevski er tvítugur og getur spilað bæði á miðju og á kanti. Hann er sænskur landsliðsmaður sem hefur komið við sögu í 20 keppnisleikjum með Ítalíumeisturum Juventus á þessari leiktíð og skorað fimm mörk.

Ísak er 17 ára gamall fjölhæfur miðjumaður sem er á mála hjá Norrköping í Svíþjóð. Hann var orðaður við Wolves og Salzburg í síðasta mánuði en ákvað að vera áfram í Svíþjóð. Hann hefur einnig verið orðaður við stærri félög eins og Manchester United, Liverpool og jú, Juventus.



Athugasemdir
banner
banner