Fotbolti.net
09.02.23 - 18:06
Brynjar Ingi Erluson

Ýmir Már í Þór (Staðfest)

Ýmir Már í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Þór

Ýmir Már Geirsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Þór en hann kemur frá nágrönnunum í KA.
Þessi fjölhæfi leikmaður er 26 ára gamall og getur spilað flestar stöður vinstra megin á vellinum.

Hann er uppalinn í KA en hefur einnig spilað fyrir Magna og Dalvík/Reyni.

Ýmir á að baki 78 leiki í meistararflokki fyrir félögin, þar af 26 í efstu deild.

Síðustu ár hefur hann spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en hann mætti á sína fyrstu æfingu með Þór í gær og verður klár í slaginn í Lengjubikarnum gegn Keflavík um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.