Fotbolti.net
09.03.17 - 22:02
Elvar Geir Magnússon

Jói Kalli: Tilbúinn að spila þegar það vantar

Auglýsing
Jóhannes Karl þjálfar og spilar fyrir HK sem leikur í Inkasso-deildinni.

Jóhannes Karl þjálfar og spilar fyrir HK sem leikur í Inkasso-deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari HK, tók fram skóna og lék í hjarta varnarinnar í Kórnum í kvöld þegar Kópavogsliðið tapaði 1-3 gegn Val í Lengjubikarnum. Það vantaði talsvert í öftustu línu HK.
„Þetta er fyrsti leikurinn hjá mér á þessu undirbúningstímabili. Ég er alveg tilbúinn að grípa inn í ef það vantar. Við erum kannski ekki alveg með eins mikla breidd í liðinu og við vildum hafa. Það var ákveðið að ég myndi spila í þessum leik í dag og ég verð alveg til taks í sumar,\" sagði Jói Kalli við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.

Pétur Pétursson var á mánudag tilkynntur sem nýr aðstoðarþjálfari HK. Jói Kalli segir að það gefi sér vissulega aukið svigrúm til að spila að hafa þennan reynslumikla þjálfara á hliðarlínunni.

„Algjörlega. Við lögðum mikla áherslu á það að fá Pétur með okkur inn í þetta verkefni. Hann er frábær fengur fyrir félagið. Við erum í skýjunum. Það er komin mikil reynsla á bekkinn ef maður ætlar að vera inni á vellinum í sumar.\"

Jóhannes segir að áfram verði unnið að því að þróa unga leikmenn og gefa þeim tækifæri snemma í meistaraflokki. Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.