Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 09. mars 2023 21:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„19 mánaða sonur minn er betri sendingarmaður en David De Gea"
Mynd: Getty Images

Það er kominn hálfleikur í viðureign Manchester United og Real Betis. Staðan er jöfn 1-1 en Marcus Rashford kom Manchester United yfir áður en Ayoze Perez jafnaði metin fyrir Betis.


Erik ten Hag stillir upp sama liði og tapaði 7-0 á Anfield um síðustu helgi en leikmenn liðsins virðast ekki ná að hrista það tap af sér.

David De Gea markvörður liðsins hefur fengið heldur betur á baukinn fyrir frammistöðu sína í þessum fyrri hálfleik frá Twitter notendum.

Hann hefur gerst sekur um slæmar ákvarðanir á boltanum. Hann var nálægt því að vera valdur af því að Betis kæmist yfir þegar hann sendi boltann beint í fætur leikmanns spænska liðsins og Betis komst í gegn en boltinn hafnaði í stönginni að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner