Odion Ighalo, leikmaður Manchester United, hefur þakkað þremur leikmönnum Manchester United fyrir að hjálpa sér að aðlagast hratt hjá félaginu.
Ighalo hefur skorað fjögur mörk í þremur byrjunarliðsleikjum fyrir United frá því hann kom til liðsins á láni í janúar Shanghai Shenhua.
Ighalo hefur skorað fjögur mörk í þremur byrjunarliðsleikjum fyrir United frá því hann kom til liðsins á láni í janúar Shanghai Shenhua.
Þessi þrítugi framherji hefur þakkað David De Gea, Sergio Romero og Juan Mata fyrir að hjálpa sér að aðlagast aðstæðum hjá United sem fyrst.
„Ég er með fullt af félögum sem hafa hjálpað mér. Strákanir í klefanum eru mjög góðir félagar," sagði Ighalo.
„Eftir tvo til þrjá daga byrjuðum við að lifa eins og bræður, eins og ég væri búinn að vera þarna í fimm ár. Við hlógum og grínuðumst saman."
„Ég vil sérstaklega þakka Mata, De Gea og Romero fyrir. Þeir hafa hjálpað mér mikið. Þeir tala allir spænsku og ég tala spænsku líka."
Athugasemdir