Elías Már Ómarsson spilaði allan leikinn fyrir lið Excelsior í kvöld sem mætti NEC Nijmegen í hollensku úrvalsdeildinni.
Elías byrjaði tímabilið sjóðandi heitur fyrir framan markið en það hefur hægst töluvert á honum síðustu vikur.
Elías komst ekki á blað í 2-1 sigri Excelsior sem er níu stigum frá umspilssæti um laust sæti í efstu deild.
Kristófer Ingi Kristinsson lék á sama tíma með varaliði PSV sem vann 2-0 útisigur á Eindhoven FC.
Varalið Ajax tapaði þá 1-0 heima gegn liði Oss og þar sat Kristian Nökkvi Hlynsson allan tímann á varamannabekk Ajax.
Athugasemdir