Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 09. apríl 2021 05:55
Aksentije Milisic
Ítalía um helgina - Skyldusigrar hjá toppliðunum
Inter Milan er með pálmann í höndunum.
Inter Milan er með pálmann í höndunum.
Mynd: Getty Images
Ítalski boltinn verður á fleygiferð um helgina og spilað verður í þrítugustu umferð Serie A deildarinnar.

Þrír leikir eru á dagskránni á morgun en Spezia og Crotone mætast í fyrsta leik umferðarinnar. Liðið í öðru sæti deildarinnar, AC Milan, mætir Parma á útivelli en AC er komið heilum ellefu stigum á eftir toppliði Inter. Ekki er langt síðan AC Milan var í efsta sætinu.

Inter mætir Cagliari í fyrsta leik sunnudagsins en hann hefst klukkan 10:30. Juventus mætir Genoa á heimavelli, Lazio heimsækir Verona og Rómverjar fá Bologna í heimsókn svo eitthvað sé nefnt.

Alla leiki helgarinnar má sjá hér fyrir neðan.

Ítalía: Laugardagur
13:00 Spezia - Crotone
16:00 Parma - Milan
18:45 Udinese - Torino

Ítalía: Sunnudagur
10:30 Inter - Cagliari
13:00 Juventus - Genoa
13:00 Verona - Lazio
13:00 Sampdoria - Napoli
16:00 Roma - Bologna
18:45 Fiorentina - Atalanta
Athugasemdir
banner
banner