Þýski miðjumaðurinn Julian Draxler er að gera þriggja ára samning við franska stórliðið Paris Saint-Germain en L'Equipe og Fabrizio Romano greina frá þessu.
Penninn hefur verið á lofti hjá PSG síðustu vikur en Keylor Navas framlengdi fyrir nokkrum vikum og þá skrifaði Neymar undir samning til 2025 í gær.
Samningur Draxler við PSG gildir út júní og var fastlega búist við því að hann myndi róa á önnur mið en annað hefur nú komið á daginn.
Samkvæmt L'Equipe hefur hann samþykkt nýjan þriggja ára samning við félagið og tekur Romano undir þetta á Twitter.
Draxler hefur spilað 31 leik á þessu tímabili, skorað 4 mörk og lagt upp 7.
Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur þá spilað 56 landsleiki fyrir Þýskaland og skorað 7 mörk.
Athugasemdir