Fotbolti.net
09.05.21 - 19:51
Victor Pálsson

England: West Brom fallið úr efstu deild (Staðfest)

Fallnir.

Fallnir.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Arsenal 3 - 1 West Brom</b>
1-0 Emile Smith-Rowe ('29 )
2-0 Nicolas Pepe ('35 )
2-1 Matheus Pereira ('67 )
3-1 Willian(90')
West Bromwich Albion er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa tryggt sér sæti í deildinni á síðustu leiktíð.

West Brom mátti ekki tapa gegn Arsenal á Emirates vellinum í dag en fyrir leikinn var liðið tíu stigum frá öruggu sæti.

Arsenal hefur oft spilað betur en liðinu tókst að kreista fram 3-1 heimasigur sem fellur Sam Allardyce og hans lærisveina.

Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Allardyce fellur úr úrvalsdeildinni þrátt fyrir mörg, mörg ár sem þjálfari í deildinni.

Emile Smith-Rowe, Nicolas Pepe og Willian skoruðu mörk Arsenal sem tryggði liðinu þrjú stig og níunda sætið. Matheus Pereira gerði eina mark West Brom.

Arsenal er fjórum stigum frá Evrópusæti þegar liðið á þrjá leiki eftir óspilaða.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.