Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 09. maí 2021 21:52
Victor Pálsson
Gylfi og Alexandra eignuðust stúlku
Mynd: EPA
Gylfi Þór Sigurðsson og eiginkona hans Alexandra Helga Ívarsdóttir eignuðustu stúlku á miðvikudaginn í síðustu viku.

Þetta kom fram á Instagram síðu Alexöndru en stúlkan hefur verið nefnd Melrós Mía Gylfadóttir.

Melrós er fyrsta barn hjónanna sem gengu í það heilaga á Ítalíu sumarið 2019. Þau höfðu fyrir það verið trúlofuð í um eitt ár.

Gylfi er eins og flestir vita besti leikmaður Íslands í dag en hann er á mála hjá Everton á Englandi þar sem hjónin eru búsett.

Gylfi spilaði með Everton í dag sem vann West Ham með einu marki gegn engu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner