Nicolas Pepe skoraði frábært mark fyrir Arsenal í dag í leik gegn West Brom í ensku úrvalsdeildinni.
West Brom er að tapa þessum leik 2-0 að svo stöddu og er því á leið niður í næst efstu deild.
Emile Smith-Rowe kom Arsenal yfir með fínu marki áður en Pepe skoraði með enn betra marki fyrir lok fyrri hálfleiks.
Pepe hefur ekki alveg fundið sig í treyju Arsenal en mark hans í kvöld var virkilega gott.
Myndband af því má sjá hér.
Pepe with a goal Robben would be proud of ❤️❤️❤️ pic.twitter.com/WLuLCKuGkT
— Piquelme (@Piquelme21) May 9, 2021
Athugasemdir