Þór/KA hafði betur gegn Aftureldingu í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í gær en liðið sigraði 2-1.
Sandra María Jessen er mikill markaskorari en hún kom liðinu yfir eftir aðeins 20 sekúndna leik. Þetta var mark númer 75 hjá henni í treyju Þór/KA.
Hún er því orðin markahæst í sögu félagsins en hún fer upp fyrir Rakel Hönnudóttur sem lék með félaginu frá 2004-2011.
Þór/KA byrjar tímabilið vel en liðið er með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina.
Sandra María Jessen setur markamet hjá Þór/KA. Með markinu er hún orðin sá leikmaður sem skorað hefur flest mörk fyrir Þór/KA í efstu deild, alls 75 mörk, og fór þar með upp fyrir Rakel Hönnudóttur.#viðerumþórka #wearethorka #fotboltinet #heimavollurinn pic.twitter.com/qt0dG3pCyh
— Þór/KA (@thorkastelpur) May 8, 2022
Athugasemdir